Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hanna
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Jarðfræðinemi og apóteksdama
  • Hjúskaparstaða: Fín takk :)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit

Hor og páskar

29. mars 2008 klukkan 23:01

Ég elska að vera veik..mhmm ég elska það svo mikið að ég er að spá í að fara á nærfötunum út á svalir og láta mér slá niður aðeins...verst að pólverjarnir eru farnir heim...öss þeir missa af sýningu.
Ég elska það svoooo mikið að vera veik að mig langar til að giftast því, sofa hjá því og eignast með því marga litla flensugríslinga sem eru alltaf veikir og liggja heima með hor í nös og segja bara: 'mamma mamma af hverju er ég alltaf veikur?'. Þá svara ég einfaldlega: 'af því að það er svo fríking gaman, krakka%$#$&!!'

Páskarnir voru góðir. Góðir. Bestir sennilega. Nenni ekki að vera með einhverja samloku um það, en þetta var nokkurn veginn svona:

''Áfram Bjössi!...Heyyyyy ég þekki þig *knús*... mamma viltu meiri bjór?...ókei förum bara heim til mín í partý...þetta er allt í lagi ég eldist svo vel...

ööhhh ég er þunn...ég trúi ekki að ég sé á skíðum á Ísafirði vúhúú!...ég vil ekki þennan bjór kelling, hann er opinn...þetta er lélegasta ball ever, komum út í Hnífsdal...ég er fríking elsta manneskjan hérna...afhverju eru ekki fleiri leigubílar að keyra??...Drusla!...

Arghhh harðsperrur!...Ég þarf að liggja aaaðeins lengur í sófanum...Bjössi nennirðu að koma með meiri bjór??...sko ég kann tæknina við að fara á klósettið hérna, það er handfang...þér er ekki boðið!...and now I've finished all the sparks, shivering in the dark, can you still hold me aliiiiiveee...vúhúúúúú...þetta er betra en kynlíf!!...hey má ég gera virki?...nei ég nenniggi í partý...

mmm páskaegg...nei Bjössi ég fer ekki út svona ógeðsleg...hey ég veit ég skil bara áfengið eftir hérna úti á götu...Bjössi hún er ekki þess virði!...úps fyrirgefðu að ég hellti á þig...afhverju er ég vakandi kl 10 að morgni??''


Það er alveg á hreinu að ég er að verða öflugri djammari með aldrinum :D



18. mars 2008 klukkan 21:27

já halló halló

Kæfillinn ég missti af flugvélinni vestur...það er svona þegar maður er fastur í rúminu með celebrity...eða kallaður til skyldustarfa í hernum...eða hefur verið boðið að reynsluaka nýja formúlubílnum hjá McClaren...

Hrm. Nei það var ekki svo gott, ég bara misskildi brottfarartímann. Hanna Sillystick.

Helgin var brjálæðislega skemmtileg. Við gellurnar byrjuðum á því á föstudaginn að fá okkur að borða saman, maturinn var alveg fáránlega góður og með honum fengum við okkur smá hvítvín og sálarlög :)

Tónleikarnir voru....úff mig skortir orð...ég hef sjaldan svitnað svona mikið, söng úr mér lungun og fékk hálsríg vegna smá slamms haha :) Algjörlega magnað og ekki skemmdi fyrir að maður var nú edrú og man þessvegna slatta (nokkuð sem gerist ekki oft á böllunum góðu híhí). Stelpurnar höfðu orð á því að ég væri meira og minna með lokuð augun...það er einfaldlega vegna þess að ég var að njóta þess að hafa tónlistina í innri líffærunum :D Æ tótallí löv itt.

Við ætluðum í eftirpartý en þegar við komum út af tónleikunum vorum við svo þreyttar að við tókum bara devitos með okkur heim og ég persónulega svaf mjög vel :)

Daginn eftir var svo haldið í sumarbústað eftir smá ves (jább þið heyrðuð rétt þetta vall uppúr mér) og eftir hressandi göngutúr var potturinn faðmaður vel og lengi. Eftir hann byrjaði matseldin og hún gekk svona líka svaðalega vel, maturinn var algjört nammi! Steikarsteinninn klikkar ekki, ég er að segja ykkur það, og ég kveikti ekki í neinu!

Eftir matinn var það afslöppun, eftirmatur, kokteilagerð, leyndarmál árshátíðarnefndarinnar kom í ljós og svo var það potturinn aftur. Sumir voru lengur í pottinum en aðrir...og voru líka aaaaðeins drukknari þegar þeir komu upp úr haha :)

Fólk var í góðu stuði þangað til ca. 6 um nóttina og allskonar vitleysa náðist á vídjó...sem internetið fær aldrei að sjá! Snilldartaktar teknir híhí :)

Þetta var samt ógeðslega leiðinlegt blogg...

Það er kannski kominn tími á játningarstund Hönnu.

Í játningarstund að þessu sinni mun ég játa mjög mikið sem hefur legið þungt á mér og það lengi. Sumir vita þetta, hafa gripið mig með buxurnar niður um mig við þessa iðju, algjörlega varnarlausa með hausinn dinglandi til beggja hliða, algjörlega í eigin heimi.

Ég er laumupíkupoppari.

Já! Ég hlusta á Umbrella með Rihönnu og Irreplaceable með Beyonce. Það nær nú samt ekkert lengra en það. Ég skelli hluta af skuldinni á jólaprófin, þá fékk ég þennan hryllilega sjúkdóm og hef ekki getað losnað við hann.

Ég hef reynt að særa þetta úr hausnum á mér með harðasta þungarokki og metal en allt kemur fyrir ekki...þannig að þið verðið bara að fyrirgefa mér. Ég skil hvernig ykkur líður...ég hef litið á það sem versta viðbjóð og já, jafnvel persónugalla, að fólk hlusti á svona tónlist. Ég hef stimplað fólk sem hálfvita og gimp og hugsað sem svo að það hljóti að hafa dottið á hausinn í æsku. Gvuði sé lof að ég hef ekki dottið í house eða teknó ennþá...

Annars er ég algjör geðklofi þegar kemur að tónlist. Án gríns...seinustu tvær plöturnar sem ég bætti inná media playerinn minn eru Diabolus in Musica með Slayer og Mozart: Symphonies No. 1-5 og skáldið þar er enginn annar en Wolfgang Amadeus Mozart. Ég held að ég verði að fara að viðurkenna það að ég er stórskrítin.

æjæjæj og óó Gilitrutt heiti ég

11. mars 2008 klukkan 17:16
Er eitthvað til sem heitir á fagmáli 'musical frustration'?? Ef svo er, þá er ég með alvarlegt tilfelli...

Ætlaði að kaupa mér miða á vin minn Eric Clapton en þá var uppselt. Ég er þvílíkt vonsvikin, var búin að fá mömmu til að koma með mér :( Eins og hún segir, vonum bara að hann fari í lax, þá kannski nennir hann að taka aðra tónleika :D

*Edit*

2000 miðum var bætt við og ég nældi mér í! Veiiiiiiiiiiiii

Svo voru þýskararnir að bæta við atriðum á Rock im Park/Rock am Ring...og ég get svo svarið það, þetta er orðinn allsvakalegur listi...

36 Crazyfists         
Against Me!         
Alter Bridge   
Babyshambles        
Bad Religion        
Bedouin Soundclash   
Black Tide        
Booka Shade        
Bullet For My Valentine   
Chris Cornell        
Coheed & Cambria        
CSS - Cansei De Ser Sexy   
Culcha Candela        
Danko Jones        
Die Toten Hosen   
Dimmu Borgir        
Disco Ensemble        
Disturbed   
EL*KE         
Fair To Midland         
Fettes Brot   
Fiction Plane        
Filter        
High On Fire   
HIM        
Hot Chip        
In Case Of Fire   
In Flames        
Incubus        
Jimmy Eat World   
Joe Lean & The Jing Jang Jong        
Johnossi        
Jonathan Davis   
Justice        
Kate Nash        
Kid Rock   
Kill Hannah        
Lostprophets        
Masters Of Reality   
Metallica        
Motörhead
        
Nightwish   
Oomph!        
Opeth        
Pete Murray   
Queens Of The Stone Age        
Rage Against The Machine        
Roisin Murphy   
Rooney         
Rose Tattoo         
Saul Williams   
Serj Tankian        
Simple Plan        
Söhne Mannheims   
Sonic Syndicate        
Sportfreunde Stiller        
Stereophonics   
The Cavalera Conspiracy        
The Fratellis        
The Futureheads   
The Hellacopters        
The Prodigy        
The Streets   
The Verve        
Turisas   

Skítt með allar vatnspyntingar og pyntingartól...þetta er það sem lætur mig engjast um!

Annars hef ég helling til að hlakka til, Sálartónleikar á föstudaginn, árshátíð bhekled á laugardaginn og svo vestur á þriðjudaginn :D