Blúb!
Nú er maður kominn í páskafrí og þá er nógur tími til að rugla eitthvað á þessu bloggi mínu. Ég veit ég er ekkert skemmtileg að blogga svona á 2ja mánaða fresti, en hey, ég skrifa allavega eitthvað...
Þið eruð væntanlega öll búin að sjá frábærar myndir frá Icebreaker partýinu þar sem ég var í mjög metnaðarfullum búningi þökk sé henni yndislegu mömmu minni sem brást mjög snögglega við og sendi mér hluta af búningnum, hinn hlutann fékk ég í mjög sniðugri búð sem heitir Bruktikken, og er staður þar sem maður getur skilað af sér gömlum fötum en líka bara tekið þau endurgjaldslaust...og pleisið er pakkað af fötum! Matarhópurinn stóð sig fáránlega vel og mér fannst skreytingarnar líka alveg sægó góðar :)
Fórum í 3ja daga vélsleðaferð til Kapp Linné um daginn með skólanum sem var alveg æðislegt en líka mjööög erfitt, það er erfiðara en að segja það að eyða 4 tímum í að keyra snjósleða, ég var með harðsperrur í hverjum einasta vöðva líkamans eftir ferðina þangað. Það var líka freeeekar skerí þegar við vorum að keyra yfir hafísinn, þá lenti ég í slushi, sem er eiginlega bara blautur snjór út af sjó sem ýtist upp í gengum pórur á ísnum, en ég brást rétt við og bara gaf allt í botn :) Svo tókst mér líka að festa mig aðeins, en því var kippt í liðinn á 20 sek af hjálpsömum ameríkana og breta :D
Á öðrum deginum fórum við upp á Linnéjökul á skúterum og grófum snjópytti til að athuga ýmsa hluti varðandi snjóalögin á jöklinum. Við grófum semsagt holu alveg niður að ísnum og mældum eðlisþyngd, hitastig og athuguðum kornastærð og lögun í hverju lagi fyrir sig, mjög skemmtilegt. Svo fengum við að hanga rosalega mikið, sem var ekki eins skemmtilegt, og þegar við fórum heim var kominn smá vindur og ég fékk mitt fyrsta frostbit/kal á nefið! Ég sá það reyndar aldrei en nasavængirnir voru aumir og svo fóru þeir að flagna = frostbit :) Maður getur nú eiginlega ekki sagt að maður hafi farið á norðurskautið án þess að fá smá kal...
Þriðji dagurinn fór í það að bora seinustu holuna fyrir stiku sem hægt er að lesa af hversu mikið jökullinn er að bráðna. Við reyndum að bora risa holu í ísinn á Linnévatnet en borinn vildi ekki starta sér, þá reyndum við að höggva gat með exi en það var ekki alveg að ganga þar sem ísinn var alveg meter á þykkt...þannig að við héldum bara af stað heim. Heimferðin var miklu styttri því allir voru orðnir vanir að skúterast í svona langan tíma, þó að ég hafi verið smá smeyk að skútera yfir hafísinn, aðallega vegna þess að við vorum að keyra á allavega 80 þarna yfir...
Á laugardaginn var svo annað fáránlega epískt partý sem kallast kitchen to kitchen, og er eins og gefur að skilja, partý sem færist á milli eldhúsa. Hvert eldhús var með þema og meðal þeirra voru 2 eld-eldhús, gömlufólkaeldhús, bensínstöð, eldhús með igloo og snjó (ekki góð hugmynd allir urðu blautir í fæturna), no milk today eldhús (smá inside joke), mental hospital, dark season, skíðaeldhús og mörg fleiri. Hvert eldhús var síðan með drykk og þeir voru misgóðir, alveg frá séríslensku bollunni sem ég bjó til, til black russian í no milk today eldhúsinu. Annað eld-eldhúsið gaf okkur drykk úr jerry cans og gömlufólkaeldhúsið gaf okkur vöfflur og brjóstsykur :D Að sjálfsögðu var fólk líka klætt í búninga og þeir efnisminnstu komu sér ekkert ofboðslega vel þegar þurfti að færa sig á milli barracka...Ég var í öðru eld-eldhúsinu, við vorum bara tvö, ég og Matt ameríkani, því þessir norsarar eru alltaf í einhverjum ferðalögum eða bara almennt ekkert að meika svona partý. Við gerðum góða búninga, tókum föt og fórum með þau út og kveiktum í þeim :) Peysan sem ég ætlaði að nota lyktaði reyndar svo illa að ég gat ekki einu sinni komið með hana inn híhí :) Svo bara spreyjaði ég allt hárið á mér upp í loft og voilá, einhverskonar búningur kominn :D Fólk var allavega mjög ánægt með hárið á mér og það var mikið snert og glös voru sett á toppinn...
Hvað er maður svo að gera í skólanum sjálfum? Ég er komin með term project í sitt hvoru námskeiðinu, annað fjallar um Pingos, sem eru mjög dularfullar hrúgur af seti með ís inní sér og enginn er alveg viss um hvað þessi fyrirbæri eru gömul vúúúúúú og ég og Minney ætlum að koma upp um þetta allt saman. Í hinu verkefninu vildi ég gera eitthvað með götunga (microsteingervingar í setlögum í sjó) og ég lenti í hóp með Osló genginu sem er mjög samheldið og furðulegt. Til dæmis er einn gaur í því gengi sem gengur allan daginn í Metallica bol og hlustar síðan á UB40...ég lét hann að sjálfsögðu heyra það. Já allavega, þannig að í því verkefni er ég að sulla í setkjarna og síðan telja götunga með víðsjá og pensli....æ læk :D
Annars gengur lífið hérna bara sinn vangang, við bökum skinkuhorn, möffins og skúffukökur og fólk elskar okkur fyrir það, sérstaklega bandaríkjamennirnir sem virðast vera með einhverskonar svarthol í maganum...
Þegar við erum ekki að baka erum við að renna okkur á rassaþotum eða að horfa á bíómyndir, held að ég hafi aldrei horft á eins margar bíómyndir á jafn stuttum tíma eins og hérna, enda er nettengingin alveg sægó geðveik og ég dánlóda eins og brjáluð væri. Við ákváðum að við yrðum að finna okkur eitthvað að gera í páskafríinu þannig að við erum búin að plana zombie movie day (day því það eru 5 myndir á planinu...og rauð skúffukaka) og svo keyptum við einnota grill á slikk og ætlum að taka djókið á þetta og grilla á 78°N :D
Nú er klukkan 5 mínútur í 11 að kvöldi og það er ennþá frekar bjart úti, og fljótlega fer að vera bjart allan sólarhringinn, alveg eins og það var dimmt allan sólarhringinn í jan og feb. Skrítið land. Og fólkið líka frekar skrítið. Ég elska það :D
Ps. myndir frá Kapp Linné og K2K koma fljótlega á Facebookið góða :D
Skrens
Ýmislegt hefur gerst seinustu 3 vikur:
-Fórum í smá skíðaferð upp á jökulinn (Larsbreeen) sem er hérna fyrir aftan barrackinn okkar. Ég drapst næstum því vegna lélegs forms en hafði það af niður...verð greinilega að fara oftar eða fá einhvern til að bera mig upp :D
-Skólinn stóð fyrir Snowscooternámskeiði og ég komst að því að ef ég myndi kaupa mér scooter (sem er btw ekki að fara að gerast) þá myndi ég sennilega verða of kreisí, keyra of hratt og drepa mig. Sjúklega gaman! Fyrsta skipti sem ég keyri snjósleða á ævinni og ég velti honum ekki...ólíkt sumum líffræðingum..pfff líffræðingar.
-Á fimmtudaginn smöluðum við saman jarðfræðifólki til að fara í bústað í Björndalen og eyddum þar einni nótt. Það var alveg kreisí gaman, ekkert klósett og ekkert rafmagn, hituðum pleisið upp með kolum og borðuðum pulsupasta í matinn og að sjálfsögðu skúffuköku í eftirrétt. Eitthvað sem allir verða að prófa á ævinni er að pissa undir stjörnubjörtum himni með norðurljósin dansandi fyrir ofan sig í svona ca. -10 °C :D Já og auðvitað með riffilinn við hendina ef ísbjössi ákveður að kíkja í heimsókn...
-Á föstudaginn var síðan friday gathering hérna fyrir utan barrackinn okkar með eldi úr gömlum jólatrjám og drasli...við vorum samt ekki að mótmæla neinu :) Svo var partý í barrack 9 og strákarnir voru duglegir að dansa og syngja fyrir okkur :)
Á morgun er ferð í Bolterdalen til að skoða meltwaterchannel í Scott-Turnerbreen, við förum með skólanum á svona risabíl með beltum...það verður frekar áhugavert. Svo er bara kreisí að gera í næstu viku, á laugardaginn er epískt partý sem kallast Icebreaker. Nýnemarnir sjá alfarið um það og ég er í theme-decoration hópnum og er með sér borð til að skreyta. Mitt borð hefur þemað knights and princesses og ég er með ýmislegt á prjónunum, og svo skemmtilega vill til að ég lenti á sama þema með búninginn minn :D Að sjálfsögðu verð ég hirðfífl.
Nenniggi meira, eins og alltaf eru myndir á Facebook :D
Pow pow!
Jebb ég er ennþá á lífi. Þessi vika hefur verið fáránlega heit, og ég er ekki að grínast, maður labbar bara í skólann án ullarnærfatnaðar og ég hef meira að segja verið án húfu og vettlinga nokkra daga...sem er náttúrulega bara unheard of á þessu landi í janúar. Hitinn fór meira að segja upp í +2 um daginn! Þetta er óneitanlega ágætis tilbreyting frá kuldanum en ég er samt alltaf með föðurlandið í bakpokanum ásamt kexmylsnunni, tilbúin í átök.
Á Svalbarða þarf maður að vera hagsýnn, útaf þessu þarna sem er að gerast á Íslandi og ég skil svona 20% af. Þess vegna er ódýrara að drekka bjór en gos, nema að það sé útrunnið fanta, og þessi bjórdrykkja hefur ýmsar afleiðingar. Fyrst ber náttúrulega að nefna ölvun mikla, en líkami minn hefur tekið upp á því skemmtilega athæfi hérna á 78°N að segja mér að ég sé full eftir hálfan bjór. Óneitanlega hagkvæmt, en ég ætla samt ekki að segja ykkur hvað ég var fljót með kassa...mamma les þetta...
Hin aukaverkunin er sú að óæskileg samsöfnun fitufruma á sér stað, aðallega fremst á búknum á bumbusvæðinu, eins og það er kallað á læknamáli. Þannig að eftir upphaflegan kílóamissi fyrstu 2 vikurnar eða svo, er ég að ná að drekka þetta allt á mig aftur. Sko mig. Til að sporna við þessu er nauðsynlegt að a) borða minna og b) hreyfa á sér raskatið. Hið fyrra er auðvelt þar sem allt hérna kostar hönd og fót og nýra, maður bakar sitt eigið brauð og þróar með sér feimni við eldhúsfélagana, en hið seinna hefur oft reynst mönnum (hóst mér) erfitt.
Þess vegna fór ég í rugby áðan. Það var awesome! Ég átti reyndar mjög erfitt með að skilja að maður á að henda frá hliðinni á sér en ekki upp fyrir höfuðið eins og í körfubolta, og maður má ekki gefa á manneskju sem er fyrir framan mann á vellinum...sem er einmitt það sem maður á að gera í körfubolta. En þetta gekk ágætlega og svo lærðum við smá að tækla :) Ef ég verð ekki blá og marin og harðsperrótt (jú það er orð) á morgun þá má ég Jósafat heita. Ekki það að maður sé ekki nú þegar blár og marinn eftir þessi sægó partý hérna...en það er önnur saga.
Ég á ömmilikki á þriðjudaginn (verð 25A ára) og það verður awesome dagur. Við byrjum á því að sofa aðeins út, förum svo í smá rölt um bæinn til að sjá hvernig hús eru byggð hérna í sífreranum (á stultum) og síðan verður haldið í barrack 13 í tacopartý :) Kannski maður drekki bjór...veit ekki...sjáum til :D Spurning um að reyna að lauma einhverju í vatnið hjá kennaranum svo að maður losni við miðvikudagstímann...
Skólinn er rosa fínn, þessa viku vorum við til helminga í labinu og á fyrirlestrum, fengum að kafa ofan í borkjarna úr hafsbotni og eigum eftir að gera götungaleit og fleira skemmtilegt :) Svo er náttúrulega föstudagur á morgun sem þýðir Friday gathering með bjór...alltaf tekst mér að koma bjór inn í umræðuna...skrítið. Það er voða næs, byrjar kl. 5 þannig að kennararnir koma stundum bara með manni beint úr tíma og allir sitja umhverfis eldinn í matsalnum og spjalla.
Aaaallavega, sakna Íslands bara ekki baun þessa stundina, bara fólksins míns :)
Hilsen, Hanna
Blogg frá 78° norðlægrar breiddar!
Þá er ég flutt til Longyearbyen á Svalbarða, búin að vera hérna í viku og það er búið að vera í einu, mjög mikið notuðu orði, AWESOME!
Nokkur atriði sem fólk spyr mest um:
- Ertu geðveik?
Uuuu já, hefurðu ekki tekið eftir því?
- Er ekki fríking kalt þarna?
Júbb það er frekar kalt hérna, enda er þetta kaldasti veturinn hérna í 5 ár og fjörðinn er að leggja sem hefur ekki gerst í nokkur ár :) Undanfarna daga hefur verið 25-30 stiga frost en ef maður á góð föt þá er það ekkert að pirra mann :)
- Hvað í fjandanum ertu að gera þarna?
Er að læra jarðfræði, ofcourse, stefni á að klára Bs-inn hérna og upplifa ævintýri lífs míns í leiðinni ;)
- Er ekki allt mökkfullt af ísbjörnum?
Júbb og þeir koma stundum inn í bæinn. Hressandi. Ef við förum út fyrir bæinn þá verðum við að vera með riffil á okkur til að geta skotið þá ef þeir ógna okkur. Annars verðum við bara að góla óhljóð og vona að þeir hræðist...
Þetta er bara mjög svipaður bær og Ísafjörður, aðeins færra fólk kannski. Starfsfólk og nemendur UNIS (háskólinn) eru um 15% bæjarbúa svo að við erum stór hluti en alls ekki yfirgnæfandi. Þetta er mjög eðlilegur bær, fyrir utan furðulegan fjölda útivistarbúða og mikinn bílafjölda.
Þessa vikuna er safety course í skólanum, þá lærum við basically allt um útivist, t.d. riffla, gps, skyndihjálp, hvernig á að klæða sig, hvernig á að tjalda í snjó og margt fleira. Síðan byrjar venjulegi skólinn á mánudaginn og ég er að taka námskeiðin Arctic Marine Geology og The Physical Geography of Svalbard sem hljóma súper spennandi fyrir nörd eins og mig :)
Er búin að kynnast alveg fullt af skemmtilegu fólki og á örugglega eftir að kynnast mörgum í viðbót. Sumt af þessu skemmtilega fólki var hérna yfir áramótin eins og við og það var geðveikt gaman, við elduðum góðan mat, bjuggum til kórónur og svo var partý. Magnað að klæða sig í skíðaföt til að fara á djammið :)
Áfengið er skítódýrt og strákarnir heitir - I'm in heaven :)
Þynnkublogg
All Hope Is Gone inniheldur samnefnt lag sem ég heyrði fyrst á safndisk sem fylgdi með Metal Hammer. Það var svo fríking gott að ég keypti plötuna og ég sé sko alls ekki eftir því. Það fyndna við þetta allt saman er að Bjössi litli hlustaði á þá hérna í gamla daga og þá fannst mér þetta vera bara öskur :) Bjössi reyndi meira að segja að láta mig hlusta á rólegri lög með þeim til að ég heyrði almennilega í söngvaranum, sem er hinn ótrúlegi Corey Taylor. Á þessari plötu fær röddin í honum aðeins meira að skína í gegn heldur en í eldra efni og er ekkert nema gott að segja um það.
Þeir eru svolítið spes þessir gæjar, setja á sig grímur og svona, en það er bara skemmtilegt og það er það skemmtilega við metalinn, hann hefur húmor fyrir sjálfum sér...ég vona allavega að þetta eigi að vera til skemmtunar því ég myndi annars ekki vilja mæta þeim í dimmu húsasundi...eða á tónleikum




Nokkur lög sem ég mæli með og jútjúb linkar til að þið getið gætt ykkur á lystisemdunum:
Gematria (The Killing Name)
Sulfur
Psychosocial
Vendetta
All Hope Is Gone
Vermilion Pt. 2 (Bloodstone Remix) (mjög rólegt og fallegt)
Eins og allir vita hefur verið mikil eftirvænting eftir nýjustu plötu Metallica, enda eru 5 ár síðan þeir gáfu eitthvað út. Þess vegna var ég rosa rosa glöð þegar þeir komu loksins með útgáfudag og skundaði ég stressuð og spennt útí Hagkaup (já ég veit) þann 12. september og keypti gripinn.
Í fyrstu yfirrennslu var ég ekki ánægð. Alls ekki. Ég var búin að lesa dóma um plötuna og bjóst ekki við neinu epísku verki. Ég skipti yfir í Slipknot í einn dag og þorði satt að segja ekki að hlusta aftur á Death Magnetic. Ég hugsaði síðan með mér að þetta bara gæti ekki staðist, greip hann með mér á leiðinni út og skellti honum í spilarann í bílnum. Þá sá ég ljósið. Þessi diskur er svona eins og gaurinn sem þú sérð fyrsta skóladaginn og hefur áhuga á að kynnast betur. Svo sérðu hann í næstu frímínútum með þvílíkan rembing og látalæti að þér snýst snarlega hugur. Svo einn daginn nærðu honum einum og það kemur í ljós að hann er yndislegur, fullur af tilfinningum og góðum riffum og sólóum :D

Ég get eiginlega ekki nefnt einhver nokkur lög sem eru best, þau eru öll snilld á sinn hátt, síst er kannski Cyanide, sem ég er ekki alveg búin að fella mig við. Uppáhalds í augnablikinu eru hinsvegar That Was Just Your Life og The Unforgiven III , sem er fallegasta lag sem ég hef heyrt lengi og ég fæ 3 cm gæsahúð þegar ég hlusta á það :)
Það eru nokkur lög sem ég fæ tár í augun við að hlusta á, sum vegna þess að þau minna mig á eitthvað en önnur bara vegna þess að þau eru svo mikil snilld. Ég hlusta ekki mikið á þessi lög því ég vil ekki fá ógeð á þeim, vil 'geyma' þau því ég er hrædd um að tilfinningin minnki með hverri hlustun :P Þið kannist kannski við þau öll og það væri gaman að heyra hvort þið eigið svona lög :) Ég get hiklaust sagt að hef mjög mikla ástríðu fyrir tónlist, þó svo að ég kunni ekki að spila hana né syngja :)
Nokkur sem mér dettur í hug í svipinn:
Tears In Heaven - Eric Clapton
Nothing Else Matters - Metallica
Stairway to Heaven - Led Zeppelin
Breathe - Sign (svolítið stalkeralegt myndband :))
Till Kingdom Come - Coldplay
Adagio með Concierto de Aranjuez - Rodrigo (er lengi að hlaðast inn en er svo þess virði)
Getaway Car - Audioslave
To Forgive - Smashing Pumpkins
Ekki nema von - Sálin
Street Spirit - Radiohead
More than words - Extreme
Þetta er gjörsamlega ótæmandi listi, ég á greinilega mörg lög sem ég má ekki hlusta mikið á :) Nema að ég vilji vera alltaf grenjandi :P
Bara svona af því að fíflaganginn vantaði alveg í þetta blogg þá koma hérna nokkrar myndir...






Þessum myndum var lymskulega stolið af snilldarsíðunum:
http://graphjam.com/
http://icanhascheezburger.com/
you asked for it...
Nú er skólinn byrjaður, seinasta árið er orðið að veruleika, og mér finnst eins og ég hafi byrjað í gær, feimin við alla og ótrúlega vitlaus um jarðfræði.
Eins og allir hafa sennilega séð á facebook(fáið ykkur facebook krakkar!) þá var námsferð í 11 daga í ágúst hjá okkur á 3. árinu. Sjúúúúúklega skemmtilegt og ég lærði svo mikið af þessu. Best var samt að setjast niður í feltinu með samlokuna og bara láta hugann reika, hvort sem maður var uppi í fjalli eða niðri í fjöru hjá flugunum vinkonum mínum. Algjörlega magnað. Það er svo auðvelt að gleyma afhverju maður er í þessu námi þegar maður situr bara yfir bókunum og andvarpar allan veturinn, en þegar manni er hleypt út...endurnærir sálina og áhugann :)
Og krakkarnir í jarðfræði. Jeminn. Ég hefði ekki getað lent á betri hóp þótt ég hefði reynt í mörg ár, alveg yndislegt fólk og svona nett klikkað sumt, alveg eins og ég :D
Vá ég ætlaði nú ekki að vera svona væmin í fyrsta blogginu eftir frí!
Ýmislegt gerðist í blogghléinu:
-Karen flutti til Danmerkur og er núna í Master í sálfræði
-Ég, Brynja og Ester fórum vestur í Mýrarboltann (Brynja var sú eina sem var nógu og hugrökk að keppa) og það var alveg æði, geggjað veður, fullt af sólbruna og nóg af djammi
-Lilja giftist honum Jakob á yndislegum degi sem endaði með æðislegri veislu
-ég var fríking RÆND í Lágmúlanum og er nýbúin að koma öllu í samt lag, fékk m.a. nýjan síma og alles svo núna get ég MMSað og hangið á netinu eins og gimp
-hélt hattapartý fyrir Lyfjufólkið og það var kreisí gaman
-Fór á seinustu helgi í árgangspartý sem snillingarnir Þórunn, Brynjar og Dísa skipulögðu og það var kreiiisí gaman...
Framundan er hinsvegar lærdómur, vinna, lærdómur og svo auðvitað jólin :D
Óður til teiknimyndapersónu
Andrés Önd er mjög misskilin önd.
Hann er vissulega skapbráður og frekar takmarkaður gáfnafarslega á tímum, en á hinn bóginn á hann alls ekki skilda þá meðferð sem hann fær frá sínum nánustu; Andrésína hótar í sífellu að halda framhjá honum, Jóakim lætur hann þræla á lúsarlaunum á milli þess sem hann rekur hann eða lætur hann vinna stórhættuleg eða fáránleg verkefni. Ripp, Rapp og Rupp gera honum oftast lífið leitt með því að læra ekki heima eða neita því að borða matinn sem hann leggur af alúð á borð fyrir þá. Jónas nágranni hans reynir síðan til hins ítrasta að angra hann á hverjum degi.
Það eru ekki allir sem myndu samþykkja það að ala upp 3 frændur sína og vinna í smjörlíkisverksmiðju til að halda þeim uppi. Þrátt fyrir einstaka óheppni þá tekst honum að komast í gegnum erfiðleikana, en endar daginn yfirleitt í Langtíburtistan eða Fjarskanistan að flýja frá óðum múg.
Því er þetta blogg tileinkað honum Andrési, sem er búinn að vera vinur minn og bólfélagi í mörg ár :) 
Ungarnir að vera erfiðir
Og Andrés svarar á viðeigandi hátt
Pínu óheppinn
Hefur ekki alltaf stjórn á skapinu...

Metnaðarfullur...

Ungadratthalar!

Einn af uppáhalds svipunum mínum :)

Andrés og Jónas=sönn ást

Að reyna að halda ró sinni

Hógvær

Hann getur líka verið háfleygur

Ekkert latur eða neitt svoleiðis..

Missti sig aðeins

Fer alltaf að hlæja þegar ég les þessa sögu...

Úr sömu sögu og að ofan

Jónas...

Alltaf svo skapgóður

...

Jebb :)
Fínt blogg til að skoða í vinnunni :D
Arna og Bæsi eru hjón, kyssast uppá títuprjón :)
Brúðkaupið var æðislegt, sérstaklega var eftirtektarvert hvað hnífapörunum var vel raðað og hvað sætaspjöldin voru fagmannlega brotin saman :D Vona að fólk hafi tekið minna eftir því hvað ég var drukkin, þetta var ekki mér að kenna, mér var bara sagt að drekka meira og meira...held að ég sé alveg búin með skandalakvótann þetta árið...Lilja þú hefur yfirráð yfir símanum mínum alltaf eftir fyrsta bjórinn...
Ég fór næstum að grenja á Sex and the City...næstum því. Endirinn var bara svo fallegur, ekkert kjammæði :) Og ef við förum aðeins út í væmnari sálma þá sá ég hvað það er ómetanlegt að eiga góðar vinkonur, mússí mússí mér þykir svo vænt um ykkur stelpur :)
Sign gjörsamlega dáleiddu mig þann 10. júní, að mínu mati áttu Whitesnake ekkert í þá, en ég reyndar þekkti bara 4-5 lög með Hvíta Snáknum á meðan ég kann Sign nærri utan að :D Whitesnake voru þó helvíti góðir, alveg magnað að Davíð Ábreiðudalur sé orðinn 57 ára, hann er náttúrulega ekki alveg jafn góður og hann var í gamla daga en er samt með taktana á hreinu haha :) (Fyrir þá sem ekki vita þá söng hann með Deep Purple í tæp 2 ár á eftir Ian Gillan, rétt áður en þeir hættu). 
Þegar Sign voru að spila þá fann ég hvað mig gjörsamlega þyrstir í almennilega þungarokks- eða metaltónleika, líffærin gjörsamlega öskruðu á meiri hristing :) Ég er meira að segja búin að sprengja önnur ipod heyrnartólin mín á stuttum tíma...
Ef ég hefði átt bót fyrir raskatið á mér í vor hefði ég sennilega farið á Rock im Park og uppfyllt þessa þörf, og þá hefði ég fengið að hitta Jonathan Davis! Guðirnir eru að refsa mér, ég bara veit það...
Í staðinn keypti ég mér Metal Hammer og með því fylgdu tveir diskar sem ég er að stúdera, er strax búin að finna 3 áhugaverðar hljómsveitir, 36 Crazyfists, Firewind og Cancer Bats :D Og auðvitað þurftu 36 Crazyfists að vera að spila á Rock im Park...
Svo er búið að vera nóg að gera, grillveisla hjá nýbökuðu hjónunum og útskriftarveisla hjá landfræðingnum, á döfinni er síðan Ísafjarðarferð, vinna, LOTR uppfræðslustelpukvöld, vinnupartý, vinna, hittingur hjá mér, vinna, annað brúðkaup, vinna, verslunarmannahelgi á Ísafirði, vinna og jarðfræðikortaferð :D Get sennilega troðið einhverjum djömmum þarna inn á milli...

Rembingsblogg
Maður getur víst ekki hætt að blogga, þá man maður ekkert hvað hefur gerst...
Ég fór semsagt í æðislega ferð á Tjörnes 21.-28. maí með litlu jarðfræðinördunum mínum, það var algjört himnaríki, brjálæðislega gott veður allan tímann og við átum nesti á hverjum degi í 40 gráðu halla og 40 metra hæð með besta útsýni ever. Hvað er betra en að vera drulluskítugur upp fyrir haus, að rembast við að klifra með hjálp jarðfræðihamarsins og ná síðan fullkomna sýninu :) Frick ég er nörd!
Kvöldunum (þegar við náðum að vaka lengur en 10) var eytt í júróvísjóngláp á klósettinu, djamm á Bauknum, greiningu á sandsteini, tölvugláp og bjórdrykkju. Yndislegt.
Ég er byrjuð að vinna í Lyfju, ég skal selja ykkur dóp. Ekki málið.
Arna elsku rúsínubollan mín er að fara að gifta sig á laugardaginn, ég get ekki beðið, ég nefnilega asnaðist til að vera í námsferðinni þegar hún var gæsuð :( Það verður pottþétt geggjað stuð, við stelpurnar erum allavega búnar að hlæja mikið við undirbúninginn á skemmtiatriðunum :D
Á þriðjudaginn er síðan ætlunin að skunda á Sex and the City myndina, loksins. Ég er búin að undirbúa mig vel með því að horfa á allar 6 seríurnar í beit. Er því fullkomlega búin að sætta mig við að finna ekki prinsinn á hvíta hestinum fyrr en ég er orðin 38 ára eða eitthvað...get bara djammað þangað til :D
Svo er það bara Whitesnake og Sign á þriðjudaginn beibí! Jeminn hvað ég hlakka til...
Ókei ekki besta blogg í heimi, en ég reyndi þó :)
nuhujjj annað blogg
Ég var farin að festa báða fætur í einhverju ógeði á gólfinu (þó að ég væri í gönguskóm) og ég var hætt að geta opnað glugga því þá myndaðist eins konar sand-ryks-matarleifa stormur í stofunni hjá mér. Engar flugur lifðu af inni hjá mér því að um leið og þær settust þá dóu þær úr rykeitrun.
Núna þori ég varla að hreyfa mig, greiði mér ekkert svo hárin fari ekki af hausnum, stroka ekkert út svo það komi ekki kusk og ég hef ekki prumpað í 3 daga.
Prófa 'brjálæðið' er í hámarki, 1 af þremur prófum búið og svona um það bil hálft heimapróf. Já Hemmarnir mínir, það kom sér vel á endanum að hafa verið að flækjast í 2 ár í þessari lyfjafræði, græddi einn eðlisfræðiáfanga sem ég fékk metinn :D
Í tilefni því að 'The Hope', nýjasta plata Sign, hefur verið í bílnum mínum (og í spilun) í næstum hálft ár...þá ákvað ég að skipta henni út :) Maður er að verða svo meyr með aldrinum, það sem ég er að fíla mest núna er nýjasta plata Incubus, 'Light Grenades'. Jesús almáttugur hvað hún er góð. Hvert einasta lag festist á heilanum á manni, ég er búin að vakna syngjandi 'Oil and water' núna 3 daga í röð...það bara er ekki hægt að hundsa það :)
Maður verður nú samt að herða sig aftur fyrir 10. júní....Whitesnake jeee! En drull og andskoti að geta ekki farið á Rock Im Park...það er í alvörunni líkamlega sárt að sjá hverjir eru að spila og missa af því :( En ég hugga mig við Whitesnake, Eric minn Clapton, brúðkaup, hittinga við hlussubýfluguna og heeeeelling af fylleríum :)
